2012


Guðrún S. Gísladóttir


Guðrún Snæfríður Gísladóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1977. Fyrstu árin tók hún þátt í starfi Alþýðuleikhússins en lét einnig að sér kveða í báðum stóru leikhúsunum í Reykjavík. Hún lék t.a.m. í rómaðri sýningu á Stundarfriði Guðmundar Steinssonar í Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi Reykjavíkur lék hún Sölku Völku og Agnes barn guðs í samnefndum leikritum. Hjá LR lék hún einnig Öldu í Degi vonar eftir Birgi Sigurðsson. Guðrún hefur leikið í ýmsum kvikmyndum og er hin þekktasta þeirra Fórnin eftir leikstjórann heimsfræga, Andrei Tarkovsky. Undanfarna tvo áratugi hefur Guðrún verið fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu og leikið þar ótal burðarhlutverk. Árið 2005 fékk hún Grímuna fyrir hlutverk kattakonunnar í Mýrarljósi eftir Marínu Carr. Hin síðustu ár hefur Guðrún m.a. leikið stór hlutverk í leikritunum Vegurinn brennur eftir Bjarna Jónsson, Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness, Allir synir mínir eftir Arthur Miller og Dagleiðin langa eftir Eugene O’Neill. Fyrir öll þessi hlutverk hlaut hún tilnefningar til Grímuverðlauna.