2008


Kjartan Ragnarsson


     Kjartan Ragnarsson lauk námi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur árið 1966 og lék á næstu árum í mörgum sýningum félagsins.  Hann sneri sér brátt að leikstjórn og leikritagerð, auk þess sem hann hefur leikgert fjölda skáldverka, svo sem nokkur verk Halldórs Laxness: Ljós heimsins, Höll sumarlandsins og Sjálfstætt fólk, Ofvita Þórbergs Þórðarsonar og Djöflaeyju Einars Kárasonar. Hann hefur leikstýrt og unnið handrit upp úr verkum skálda á borð við Shakespeare, Ibsen, Tsjekhov og Friedrich Dürrenmatt og frumsamið fjölmörg leikrit sem hann hefur oftast sett sjálfur á svið. Hann hefur leikstýrt nokkrum sinnum erlendis. Kjartan er stofnandi Landnámssetursins í Borgarnesi ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Margréti Guðmundsdóttur, og hafa þau rekið það í sameiningu.