1989


Valdimar Örn Flygenring


     Valdimar Örn Flygenring útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1986. Að námi loknu lék hann ýmis burðarhlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur, meðal annars Reyni í Degi vonar Birgis Sigurðssonar, Ponna í Síldin er komin eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur, Laertes í Hamlet Shakespeares, Casey í Þrúgum reiðinnar eftir Steinbeck og Gerardo í Dauðinn og stúlkan eftir Ariel Dorfman. Hann hefur einnig leikið með ýmsum sjálfstæðum leikhópum og Leikfélagi Akureyrar, auk þess sem hann hefur leikið í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi. Valdimar Örn var í mörg ár fastráðinn við Þjóðleikhúsið þar sem hann lék meðal annars Magnús í Sönnum sögum af sálarlífi systra, leikgerð Viðars Eggertssonar eftir sögum Guðbergs Bergssonar, Radomskí í Fávita Dostojevskís, Gooper í Ketti á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams, Egil í Óskastjörnu Birgis Sigurðssonar og Ernest McIntyre í Oss morðingjum Guðmundar Kambans.