1989



Ljósmynd: Halldóra Sigríður

Edda Heiðrún Backman


     Edda Heiðrún Backman útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1983.  Strax að námi loknu lék hún Árdísi í Hart í bak Jökuls Jakobssonar hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Auði í söngleiknum Litla hryllingsbúðin hjá Hinu leikhúsinu.  Hún hefur leikið fjölda hlutverka á sviði Þjóðleikhússins og Leikfélags Reykjavíkur, auk þess sem hún hefur leikið með ýmsum hópum og komið fram sem söngkona.  Meðal hlutverk hennar í Þjóðleikhúsinu eru Helga í Elín Helga Guðríður eftir Þórunni Sigurðardóttur, Donna Elvíra í Don Juan Molières, Selía í Sem yður þóknast Shakespeares, Gína í Villiönd Ibsens, Golda í Fiðlaranum á þakinu, Kerlingin í Gullna hliði Davíðs Stefánssonar, Ranevskaja í Kirsuberjagarði Tsjekhovs og Elísabet drottning í Ríkharði III Shakespeares.  Fyrir nokkrum árum varð Edda Heiðrún að hætta að leika sökum erfiðra veikinda, en sneri sér þá að leikstjórn og hefur stýrt mörgum sýningum hjá Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og víðar.