1972


Þorsteinn Gunnarsson


     Þorsteinn Gunnarsson var aðeins seytján ára gamall þegar hann kom fram í fyrsta hlutverki sínu hjá L.R.  Hann varð síðar fastráðinn leikari hjá félaginu í þrjá áratugi, auk þess sem hann leikstýrði mörgum sýningum. Á árunum 1980 til 1983 var Þorsteinn leikhússtjóri L.R. ásamt Stefáni Baldurssyni.  Þorsteinn lék einnig nokkrum sinnum í Þjóðleikhúsinu, hann hefur leikið í nokkrum kvikmyndum og unnið mikið í útvarpi og sjónvarpi, bæði sem leikari og leikstjóri. Af stærstu hlutverkum Þorsteins má nefna Umba í Kristnihaldi undir Jökli Halldórs Laxness, Kormák í Skjaldhömrum Jónasar Árnasonar, Petrútsíó í Ótemju Shakespeares, H.C. Andersen í Úr lífi Regnormanna eftir P.O. Enquist, Arnas Arnæus í Íslandsklukku Laxness, Pressarann í Dúfnaveislu sama skálds, Meistarann í Ég er meistarinn eftir Hrafnhildi Guðmundsdóttur Hagalín, Leópold Netlan í Largo desolato eftir Václav Havel og Faust í Faust-leik Vesturports.  Þorsteinn er menntaður arkitekt og einn þriggja arkitekta Borgarleikhússins. Hann hefur um árabil unnið ötullega að endurreisn merkra bygginga á Íslandi, m.a. Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju, Nesstofu og Bessastaðastofu, Stjórnarráðshússins og Alþingishússins, Dómkirkjunnar í Reykjavík og Hóladómkirkju.